Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Blessuð börnin

05. desember 2008 klukkan 23:09
Ég bara verð að setja þetta hérna inn.
Við vorum að borða kvöldmatinn og ég er eitthvað að leiðbeina Kristrúnu og segi eins og ég geri í flestum tilfellum þegar ég tala við þær "ástin mín".
Þá segir Rannveig: Mamma afhverju segiru alltaf ástin mín við okkur?
"Af því að þið eruð börnin mín og ég elska ykkur og þið eruð ástirnar mínar" svaraði ég.
"Já en þú segir þetta líka alltaf við pabba!" svarði hún að bragði.
Finnst þetta bara svo frábært að ég varð að deila þessu með ykkur.
Ástarkveðjur til ykkar :*

Kominn tími á eitt blogg eða svo?

05. desember 2008 klukkan 14:39
Já það er margt búið að gerast síðan síðasta bloggfærsla var rituð.
Ég er vitanlega búin að fá út úr strong prófinu/könnuninni. Og útkoman kom á óvart!! En þegar ég var búin að melta þetta aðeins þá kom það ekki jafn mikið á óvart.

Áhugasviðskönnunin inniheldur 317 fjölvalsspurningar sem taka m.a. til hinna ýmsu starfa, áhugamála auk þess að taka til persónulegra þátta sem álitið er að hafi áhrif á nám og störf. Áhugi hvers einstaklings er síðan borinn saman við áhuga margra annarra sem hafa sagst vera ánægðir og njóta velgegni í vinnu sinni. Strong Interest Inventory byggir m.a. á þeirri hugmynd að einstaklingar séu ánægðari og afkastameiri í vinnu sem þeim finnst áhugavekjandi og þegar þeir vinna með fólki með svipuð áhugamál og þeir sjálfir hafa.

Í stuttu máli þá mælir áhugasviðskönnunin samkvæmt orðanna hljóðan, áhugasvið fólks en einnig er tekið inn í hana m.a. mæling á hvernig náms- og starfsumhverfi einstaklingum hentar best. Rétt er að taka fram að áhugasviðskönnunin mælir ekki hæfileika til starfs eða náms. Könnunin byggir að mestu leyti á kenningum Dr. John Holland sem fjalla í megindráttum um sex starfsmanngerðir eða "týpur". Þannig er með könnuninni hægt að finna út hvernig starfsmanngerð einstaklingar eru og út frá því hvaða störf kunni að henta þeim best. Þessar sex starfsmanngerðir eru:

Raunsæ manngerð (Realistic type)
Raunsæ manngerð vill vinna líkamlega vinnu, nota vélar og tæki og sjá mikil afköst. Hún er jarðbundin og íhaldssöm og allar breytingar verða að vera hagkvæmar svo henni falli þær í geð. Hún er líkleg til að búa yfir hugvitssemi, stærðfræðihæfileika og líkamlegum styrk.

Íhugul manngerð (Investgative type)
Íhugul manngerð vinnur með hugtök og hugmyndir og tekur hið sértæka fram yfir hið hlutlæga. Hún vill vinna sjálfstætt og skapa sitt eigið vinnukerfi. Rökhugsun er beitt við ákvarðanatöku. Þessi manngerð getur búið yfir vísindahæfileikum, hæfni til rökgreiningar, ritleikni og stærðfræðihæfileikum.

Listræn manngerð (Artistic type)
Listræn manngerð vill vinna við túlkun, tjáningu og sköpun. Henni finnst best að vinna sjálfstætt og skapa sitt eigið vinnukerfi. Sá listræni býr oft yfir ímyndunarafli, sköpunargetu, innsæi, næmi og tilfinningasemi.

Félagslynd manngerð ( Social type)
Félagslynd manngerð vinnur helst þar sem félagslegar umbætur og mannúðleg sjónarmið ráða ríkjum. Hún er félagslynd, finnst gott að vinna með öðrum og leysir vanda með því að tala um hann. Hæfileikar félagslyndrar manngerðar felast því oft í félagslegum samskiptum, málskilningi, því að geta hlustað á aðra og kennt fólki.

Athafnasöm manngerð (Enterprizing type )
Athafnasöm manngerð hefur áhuga á að vinna þar sem hún hefur áberandi áhrif á framvindu mála og mannaforráð. Hún vill vinna þar sem mikið er um að vera og átök eiga sér stað og á gott með að tala fólk á sitt mál, einnig við sölu á hugmyndum og hlutum. Sá athafnasami er yfirleitt mælskur, sannfærandi, hefur leiðtogahæfileika og er fær í mannlegum samskiptum.

Vanaföst manngerð ( Conventional type)
Vanafastri manngerð finnst þægilegast að vinna í vel skipulögðu umhverfi. Hún vill vinna við smáatriði og endurtekningar og hefur glöggt auga fyrir villum í texta og tölum. Henni líður vel að vinna undir stjórn annarra.

Og hvaða flokki haldið þið nú að ég tilheyri????
Ég skoraði hæðst í félagslynd manngerð! Næst í Listrænni og svo í raunsæ manngerð! Þessi k0nnun tekur til svo margra þátt og er svo vítt að ég hreinlega nenni ekki að útskýra það allt hér. En miðað við allar prófanir þá ætti mér að líka í vinnu sem leikskóla kennari / kennari í yngsta stigi grunnskóla. Og næsta er occupational therapist sem ég held að útleggist sem iðjuþjálfi. Og ég hef mikinn áhuga á að læra iðjuþjálfun!(eftir að ég ræddi þeta við Rögnu mína) Svo koma þarna á eftir fjöldinn allur af störfum t.d. nr 3 er advertising executive! Ég ætlaði einmitt að læra grafíska miðlun!! Skondið.

Laddi minn kom svo heim í 5 daga um daginn. Ég fór með hann á Salsa námskeiðið og hann stóð sig eins og hetja, var eini kk fyrir utan kennarann!! Vorum svo með smá partí og það var mjög gaman á meðan við vorum heima, fórum svo niður í bæ og þar var ekki gaman! Þannig að við fórum bara mjög snemma heim!
Ég er að fara með stelpurnar og Söru systir á Láp og Skráp á sunnudaginn. Förum niður í bæ á morgun að sjá jólasveinana syngja á svölnum hjá Eymundsson. Og kíkjum nú svo sennilegast í Norðurportið (Kolaport norðursins) sem er verið að opna á morgun.
Svo eru þær að fara að syngja á Frostrósartónleikunum 12.des og syngja svo á tónleikum með Magna í Glerárkirkju 19 desember! Og þann 19 des verða líka litlu jólin í skólanum hjá þeim! Nóg að gera þannig að tíminn hann flýgur!
Laddi kemur svo heim þann 22 des.
Ég er búin að baka 7 smákökusortir og er líka búin að jólaskreita smá og þrífa smá þannig að þetta er bara allt í góðum málum hjá okkur!
Fór með stelpurnar inn í Kjarnaskóg í gær til að freistast til að ná góðri mynd í jólakortin. Þetta var bara eins og að vera staddur í ævintýri þarna. Allt svo fallegt og kyrrlátt. Trén hjúpuð af snjó, kanínur undir tré, fuglasöngur og barnshlátur! Verður varla fallegra.

Hafið það gott elskurnar Kiss
Kveðja Lauga.

Hvað er ást??

19. nóvember 2008 klukkan 12:41
Ég bara varð að setja þetta hérna inn. Mamma sendi mér þetta á e-maili.
Hér eru svör barna á aldrinum 4-8 ára við spurningunni "Hvað er ást?".
Alveg frábært að lesa þetta.

Hvað er ást í hugum ungra barna?


Gefðu þér 3 mín. til að lesa þetta. Það er alveg þess virði. Fagfólk lagði spurninguna fyrir hóp af 4 - 8 ára börnum, "Hvað þýðir Ást?"

Svörin voru fjölbreyttari og dýpri en nokkurn grunaði. Hvað finnst þér?:


'Þegar amma mín fékk liðagigtina gat hún ekki
beygt sig niður til að lakka táneglurnar lengur.
Svo að Afi minn gerði það alltaf fyrir hana jafnvel
eftir að hendurnar hans fengu liðagigt líka. Það er Ást.'
Rebekka 8 ára

 

'Þegar einhver elskar þig, segja þeir nafnið þitt öðruvísi.
Þú bara veist að nafnið þitt er öruggt í munninum á þeim.'
Billy - 4 ára

 

'Ást er þegar stelpa setur á sig ilmvatn og strákur setur á sig rakspíra
og þau fara út og lykta af hvort öðru.'
Karl - 5 ára


'Ást er þegar þú ferð út að borða með einhverjum og hann gefur þér frönskurnar
sínar án þess að láta þig gefa sér nokkuð af þínum eigin.'
Chrissy - 6 ára


Ást er það sem lætur þig brosa þegar þú ert þreytt.'
Terri - 4 ára


'Ást er þegar Mamma gerir kaffi handa Pabba,og hún tekur sopa áður en hún gefur honum það til að vera viss um að bragðið sé í lagi.'
Danny - 7 ára

 

'Ást er þegar þið kyssist öllum stundum. Síðan þegar þið eruð þreytt á að kyssast viljið þið enn vera saman og tala meira.
Mamma mín og Pabbi eru þannig. Það er ógeðslegt þegar þau kyssast'
Emily - 8 ára

 

'Ást er það sem er með þér í stofunni á Jólunum ef þú stoppar að taka upp gjafirnar og hlustar.'
Bobby - 7 ára (Vaá!)

'Ef þú vilt læra að elska meira skaltu byrja á vini sem þú hatar,'
Nikka - 6 ára
(við þurfum nokkrar milljónir af Nikkum á þessa jörð)


'Ást er þegar þú segir strák að þér finnist skyrtan hans falleg,
og þá gengur hann í henni alla daga.'
Noelle - 7 ára

 

'Ást er eins og lítil gömul kona og lítill gamall maður sem eru
enn vinir jafnvel eftir að þau kynnast hvort öðru svo vel.'
Tommy - 6 ára

'Þegar ég var með píanótónleikana mína, var ég á sviði og ég var hrædd.
Ég leit á allt fólkið sem horfði á mig og sá Pabba minn veifa og brosa.
Hann var sá eini sem gerði það. Ég var ekki hrædd lengur'
Cindy - 8 ára

 

'Mamma mín elskar mig meira en nokkur annar.
Þú sérð engan annan kyssa mig góða nótt á kvöldin.'
Clare - 6 ára


'Ást er þegar Mamma gefur Pabba besta hlutann af kjúklingnum.'
Elaine - 5 ára

 

'Ást er þegar Mamma sér Pabba illa lyktandi og sveittan
og segir enn að hann sé myndarlegri en Robert Redford.'
Chris - 7 ára


'Ást er þegar hvolpurinn þinn sleikir þig í framan
eftir að þú skildir hann eftir einan allan daginn.'
Mary Ann - 4 ára


'Ég veit að stóra systir mín elskar mig vegan þess hún gefur mér
öll gömlu fötin sín og verður að fara í búðina og kaupa ný.'
Lauren - 4 ára


'Þegar þú elskar einhvern, fara augnhárin upp og niður
og litlar stjörnur koma út úr þér.' (þvílík sýn)
Karen - 7 ára


'Þú ættir ekki að segja "Ég elska þig" nema þú meinir það.
En ef þú meinar það áttu að segja það oft. Fólk gleymir.'
Jessica - 8 ára


Og að lokum:

4 ára gamall drengur átti gamlan herramann að nágranna sem hafði nýlega misst konuna sína.
Þegar hann sá gamla manninn gráta, fór litli drengurinn inn í garð herramannsins, klifraði upp í kjöltu hans og bara sat þar.

Þegar móðir hans spurði hann hvað hann hafði sagt við gamla manninn svaraði hann: "Ekkert. Ég bara hjálpaði honum að gráta"


Það er fyrst þegar ekkert er eftir nema Guð, að við gerum okkur ljóst að Guð er allt sem við þurfum.
Förum með örstutta bæn í huganum fyrir hvort öðru og höldum hamingjusöm og full ástar út í lífið.

Ástarkveðjur til ykkar Kiss
Lauga.

Tíminn flýgur!

18. nóvember 2008 klukkan 14:47

                                               Hubby

Já það er ekki annað hægt að segja um tímann annað en það að hann gjörsamlega æðir áfram!
Þann 16.nóv voru liðin 7.ár síðan ég og Laddi fórum að vera saman!
Já alveg ótrúlegt. Og það voru liðin 6 ár síðan hún Rannveig Sif var skírð! Og núna þann 20 eru liðn 6.ár síðan við settum upp hringana.
Ég þakka fyrir það á hverjum degi að hafa kynnst ástinni minni. Ég verð ástfangnari af honum með hverjum deginum sem líður. Og ég þakka fyrir það á hverjum degi að lifa á tölvuöldinni því að annars hefðum við aldrei kynnst!
Og það eru bara 2 dagar þangað til hann kemur heim! Ég get ekki beðið. Það verður sko stuð á okkur þegar hann kemur heim. Við förum á Salsa-námskeið(suss bannað að segja frá hann veit ekki af því!!)  á föstudaginn og verðum svo með smá party um kvöldið!! Svo verður stíf dagskrá það sem eftir lifir af helginni. Dætur okkar eru sko búnar að ákveða fullt sem á að gera!!! Þannig að það er best að vera sem minnst þunnur á laugardaginn!!!

Ég er svo að fara á fimmtudaginn að fá útkomuna úr strong prófinu! Hlakka rosa mikið til. Og svo þar á eftir er ég að fara í langþráða klippingu og strípur!!! Ætla reyndar ekki að láta klippa mig mikið, er mjög sátt við síddina nema á toppnum hann er of síður. Þannig að maður verður vonandi aðeins sætari á fösstudagskv.

Jæja ég þarf að fara að ath með rúgbrauðið í ofninum! Er orðin ofvirk í bakstri!!
Kv, Lauga.

                                                     Love tree

KLUKK!

06. nóvember 2008 klukkan 16:34
Jæja ég var klukkuð af henni Boggu! Það er víst best að standa sig í því!

1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
    -
Heimilishjálp(núverandi)
   - Ræsting
   - Ýmis fiskvinnsla
   - ýmis verslunarstörf

2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:
   - Englar alheimsins
   - Mýrin
   - Stella í orlofi
   - Löggulíf

3.  Fjórir staðir sem ég hef búið á:
    - Breiðdalsvík
    - Egilsstaðir + Fellabær
    - Grindavík
    - Akureyri

4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
     
-Tenerife
    - Krít
    - Reykjavík
    - Margir staðir á ÍSL!

5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líka:
    - Men in trees
    - House
    - Greys
    - C.S.I

6.  Fjórar síður sem ég skoða daglega:
    - visir
    - mbl
    - BeadStyle
    - bloggsíður vina

7. Fernt sem ég held upp á matarkyns:
    -Rjúpur
    -Hangikjöt
    -Gyros pita
    -kjúklingur

8. Fjórar bækur sem ég hef oft lesið:
    -hef ekki  lesið neina bók oftar en einu sinni!

9. Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
   - Hjá honum Ladda mínum
   - Krít
   - Danmörk
   - liggjandi í sólbaði með drykk í annarri og bók í hinni!

10. Fjórir bloggarar sem ég klukka:
      - Eva
      - Unnur Jóna
      - þar með eru bloggararnir upptaldir!

Hellú

05. nóvember 2008 klukkan 19:21
Sæl verið þið!
Ég hef nú ekkert merkilegt að skrifa um í augnablikinu. Það er allt bara svona ósköp rólegt og venjulegt hér hjá okkur. Það er alltaf eitthvað aðeins að gera hjá mér í nöglunum, reiknaði samt með að það myndi minnka. En ég er mjög ánægð að svo er ekki. Það eru svo síðustu forvöð að fá neglur á 2500!
Fer að styttast í diplómuna! Smile


Fékk alveg hreint yndislegar gjafir í gær! Dætur mínar voru svo yndislegar við mömmu sína að teikna myndir handa mér og skrifuðu á þær " Ég elska þig". Mér fannst þetta svo fallegt að ég fékk tár í augun yfir innileika barnanna. Fékk líka staðfestingu á því að ég hlyti að vera að gera eitthvað rétt!
Ég er svo loksins búin að fara í STRONG prófið og nú er bara að bíða eftir niðurstöðunum. Þær eru væntanlegar í lok næstu viku.
Þannig að ég bíð spennt. Er svo búin að finna skóla sem ég hef augastað áWink

Bless í bili.
Lauga.

Annar brandari!

29. október 2008 klukkan 21:09
Í ljósi dimmra tíma í þjóðfélaginu þá ákvað ég að reyna að gera mitt til að létta þeim örfáu hræðum sem líta hér inn lundina.

Ótrúlega falleg rauðhærð kona mætir til læknis og segir að sig verki allstaðar í líkamanum.
Læknirinn trúir henni ekki og biður hana um að sýna sér.
Hún tekur til við að pota með vísifingri hingað og þangað í líkamann á sér í hvert skipti öskrar hún uppyfir sig af verk.
"Þú ert með litað hár er það ekki", spyr læknirinn.
Hún jánkara því.
"Þú ert nefnilega puttabrotin!!!"

HAHAHAHAHA alltaf góðir ljóskubrandararnir!

Góðar stundir Kiss

Gott að kunna sitt fag!

26. október 2008 klukkan 19:56

Tveir sveitalubbar, Jói og Siggi, sáu að þeir voru komnir á endastöð í lífinu og ákváðu að fara í skóla til að komast eitthvað áfram. Þeir byrja á því að fara til námsráðgjafa og Jói fer inn fyrstur.  Námsráðgjafinn ráðleggur Jóa að taka stærðfræði, sögu og rökfræði. 
"Hvað er rökfræði?" spyr Jói. 
Námsráðgjafinn svarar: "Leyfðu mér að koma með dæmi. Áttu sláttuvél?" 
"Hana á ég," svarar Jói. 
"Þá geri ég ráð fyrir; og nota rökfræði, að þú eigir garð," svarar námsráðgjafinn. 
"Mjög gott," segir Jói hrifinn. 
Námsráðgjafinn hélt áfram, "rökfræðin segir mér líka, að fyrst þú átt garð, þá áttu líka hús." 
Yfir sig hrifinn hrópar Jói: "FRÁBÆRT!"  
"Og fyrst þú átt hús, þá má jafnvel giska á að þú eigir konu." 
"Hana Mæju! Þetta er ótrúlegt!"  
"Og að lokum, fyrst þú átt konu, þá er rökrétt að gera ráð fyrir að þú sért gagnkynhneigður," segir námsráðgjafinn. 
"Það er alveg hárrétt! Þetta er það magnaðasta sem ég hef nokkurn tíma heyrt! Ég get ekki beðið eftir að byrja í rökfræði."  

Að því búnu fer Jói fram þar sem Siggi bíður ennþá. 
"Hvaða fög tekurðu?" spyr Siggi. 
"Stærðfræði, sögu og rökfræði," svarar Jói. 
"Hvað í veröldinni er rökfræði?" spyr Siggi. 
"Leyfðu mér að koma með dæmi. Áttu sláttuvél?" spyr Jói. 
"Nei, svarar Siggi" 
"Þá ertu hommi!"



smileys

Æðruleysi

21. október 2008 klukkan 20:46

Held að það sé bara best að taka á lífinu með æðruleysinu og fallegum hugsunum í dag.
Maður reynir af fremsta megni að láta ástandið hafa sem minnst áhrif á mann, þar sem við erum nokkuð vel stödd. En það er nú bara hægara sagt en gert því að það er alveg sama hvert maður fer allstaðar er fólk að tala um þessa hluti. Eftir að ég byrjaði í þessari vinnu sem ég er í dag, hefur mér lærst það að þakka fyrir það að vera heil heilsu og það að eiga mann sem elskar mig og heilbrigð börn sem finnst ég vera besta mamma í heimi! Er það ekki það sem skiptir höfuðmáli!!??
  
Set hér inn nokkrar ljóðlínur úr sögunni um músina hana Pílu Pínu.



                                            Heimurinn er betri en við höldum

                              hitt er flest af okkar sjálfra völdum

                                 sem á móti blæs og miður fer

                                Best er öllu böli því að gleyma

                             sem bætt við ekki fáum úr og dreyma

                                     það eitt sem fallegt er


Ég er nú ekki enn búin að panta mér tíma hjá námsráðgjafanum, en er á leiðinni til þess á næstu dögum. Það er erfitt þegar mann langar til að læra svona mikið. Er alvarlega að hugsa um fót og handsnyrtinguna. Þá þarf ég að taka snyrtifræðina í FB. Og það er náttúrulega soldið mikið verklegt þannig að maður tekur það ekki í fjarnámi.
Já já ég veit var víst búin að ákveða að fara í grafíska miðlun, þó að mér finnst það mjög spennandi og áhugavert þá er ég ekki viss um að ég myndi endast í að vinna við það. Hvað finnst þér?? Endilega segðu mér það.

Ætla að enda þetta skiptið á bæn sem er gott að hafa á bak við eyrað þessa dagana.
Hafið það gott
Kiss



                                      Guð gefi mér æðruleysi

                       til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt

                            kjark til að breyta því sem ég get breytt

                                    og vit til að greina þar á milli


                                Tweety Heart

 

Hvað skal gera?

04. október 2008 klukkan 10:53
Jæja nú er ég búin að taka þá ákvörðun að fá tíma hjá námsráðgjafa í HA og taka þetta strong próf. Var sko alveg búin að ákveða að fara út í það að læra grafíska miðlun, en núna er ég líka alveg á því að læra hand og fótsnyrtingu. Á eftir að kynna mér það aðeins betur, því að ef að það er inni í því að nota hnífa og svoleiðis dót þá er það ekki fyrir mig! Ég myndi bara steinliggja í gólfinu ef að það myndi blæða úr einhverjum hjá mér. Shit er svo mikill aumingji hvað þetta varðar. Væri líka rosalega til í að læra gullsmíði, en það er ekki nógu praktíst. Hef samt haft áhuga á því síðan alltaf!
Amma sagði reynda alltaf að ég yrði annað hvort prestur eða fornleifafræðingur. Hafði reyndar og hef mikinn áhuga á fornleifafræðinni. Væri svo til í að taka þátt í svo verkefni eins og Pompei http://is.wikipedia.org/wiki/Pompeii og svoleiðis. Rosa spennó! En ég sé mig ekki fyrir mér sem prest. Ég yrði alltaf grenjandi í kirkjunni. Þoli ekkkert svona viðkvæmt orðið, fer bara að skæla. Var að hora á Glæstar vonir í gær, eitthvað voða tilfinningaþrungið atriði hjá Stephanie og mömmu hennar og ég fór bara að skæla! (trúi því ekki að ég sé að segja frá þessu hér!!!) Horfi reyndar ekki á Bold á hverjum degi, bara svo að það sé hér á kristal tæru!!!

Að allt öðru. Litla barnið mitt er að verða 6.ára í næstu viku! Tíminn líður svo rosalega hratt. Ég veit ekkert hvað ég á að kaupa handa henni á afmælisgjöf. Ætla bara að fara með hana í Toysrus og leifa henni að skoða og í Hagkaup líka. Kaupi svo bara það sem hana langar mest í, á meðan það er þó innan vissra marka!
Það er alltaf verið að panta í neglur hjá mér, er bara farin að skrifa niður því að það klikkaði eitthvað sendingin til mín og ég er eiginlega orðina naglalaus Óákveðinn ekki nógu gott. En ég er s.s. að fá hellings æfingu í þessu. Hef ekki getað æft mig neitt í airbrushinu, það er reyndar alls ekki nógu gott. Tek sem betur fer ekki lokapróf í því. En ef það er einhver sjálfboðaliði til í þetta þá bara bjalla í mig sko!

En ég er að hugsa um að fara og kaupa málningu á herbergið hennar Rannveigar og gera það svoldið kósý. Væri algjör draumur að geta gert það eins og ég sé það fyrir mér. Veggfóðrarð upp á miðja veggi og svo málað í pastel bleikum þar á móti. Hún er svo mikil prinsessa að það væri sko ekta hún að hafa það svoleiðis. Vantar bara svona lið eins og er í Exterem makeover! Ég kann nefnilega ekki svona. Það er svo mikið moj að veggfóðra, ég myndi bara klúðra því!

Eitt svona í lokin. Í dag er söfnunin göngum til góðs. Ég var nú búin að husa mér að láta gott af mér leiða í þeirri söfnun. Á meðan ég sat hér fyrir framan tölvuna þá var stungið inn um lúguna hjá mér miði með logoi söfnunarinnar og á honum stóð "hér var enginn heima"!!!What!!?? Ég var bara víst heima! Finnst þetta svolítið cheap ef fólk er að taka þátt í átaki en nennir því samt ekki og dregur börnin sín með í þetta. Mjög gott fordæmi!! Eða þannig. Í staðinn ætla ég bara að hringja í einhver 900nr sem var gefið upp á miðanum líka.

Jæja elskurnar ætla að láta þetta duga í bili.
Koss Lauga

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Guðlaug Erla Ágústsdóttir
  • Staður: Akureyri
  • Hjúskaparstaða: Gift
  • Um mig: Ég er gift ástinni minni honum Ladda. Við eigum 2 stúlkur sem sjá til þess að mamma þeirra hefur alltaf nóg að gera!

Könnun

Hlakkar þig til jólanna?

Leit